Raungengi, mælt sem hlutfallsleg þróun verðlags hér á landi samanborið við helstu viðskiptalönd, lækkaði um 2,7% í apríl frá fyrri mánuði samkvæmt mælingu Seðlabanka Íslands.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Vísitala raungengis er nú 88,3 stig og hefur ekki verið lægri í sex ár að sögn Greiningar Glitnis. Nafngengi krónunnar var að meðaltali um 3,8% lægra í apríl en í mars.

„Nafngengi krónunnar hafði lækkað síðustu fimm mánuði þar á undan en síðan í júlí þegar lausafjárkrísan byrjaði að hafa áhrif til lækkunar gengis krónunnar hefur nafngengi lækkað um 23,6% en á sama tíma hefur raungengi krónunnar lækkað um 22,3%,“ segir í Morgunkorni.

Þá segir einnig að hreyfingar nafngengis eru ráðandi í raungengisþróun til skemmri tíma. Verðlagsáhrif gengisbreytinga skila sér hinsvegar hraðar hér á landi en víða erlendis, og varð því breyting raungengis á tímabilinu minni en breyting nafngengis sem þessu nemur.

Batnandi samkeppnisstaða

„Lægra raungengi hefur alla jafna jákvæð áhrif á viðskiptajöfnuð þar eð samkeppnisstaða útflutningsgreina og þeirra greina sem eru í samkeppni við innfluttar vörur batnar þegar gengi krónunnar lækkar ásamt því að dýrari innflutningur ætti að slá á einkaneyslu,“ segir í Morgunkorni Glitnis.

„Þannig eykur lækkandi raungengi samkeppnishæfni þjóðarbúsins í alþjóðlegu tilliti. Það tekur hins vegar nokkurn tíma fyrir þau áhrif að koma fram, og til skamms tíma getur snörp lækkun gengis gjaldmiðla fært viðskiptajöfnuð tímabundið til verri vegar.“