Raunlaun hafa lækkað um tæp 10% í febrúar 2009 frá sama mánuði á fyrra ári, sem er meiri lækkun en sést hefur í a.m.k. tvo áratugi. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Þar er bent á að þegar nafnlaun hækka minna en verðlag eða alls ekki, leiðir það til þess að raunlaunin falla og eftirsóknaverðara verður að ráða fólk til vinnu. Slíkt á sérstaklega við í atvinnugreinum sem framleiða til útflutnings eða eru í samkeppni við innflutning þar sem samkeppnisstaða þeirra hefur batnað mikið í erlendum gjaldmiðli talið.

Við núverandi aðstæður er mikilvægt að endurreisn bankakerfisins gangi hratt og vel fyrir sig svo að fyrirtæki sem sjá sér hag í að taka lán til að auka starfsemina fái möguleika til þess. Þegar það fer að gerast munu hjól efnahagslífsins taka að hreyfast hraðar á ný. Þá er viðbúið að atvinnuleysið taki að minnka og nafnlaun að hækka á ný.