Heildarvelta á fasteignamarkaði í þessari viku var tæplega 3,8 milljarðar króna. Meðalupphæð hvers kaupsamnings var 41,8 milljónir króna.

Þetta kemur fram í tölum frá Fasteignamati ríkisins.

Vísitala íbúðaverðs var 350,1 stig í ágúst, og hækkar um 0,3% frá fyrri mánuði.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,9% á sama tíma samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Fasteignaverð lækkar því að raunvirði í ágúst.