Eins og greint var frá í gær hefur Rauðsól ehf., félag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar keypt eignir 365 af stjórn félagsins. Með í kaupunum fylgir 36,5% hlutur í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra er Rauðsól rétt rúmlega tveggja vikna gamalt fyrirtæki, stofnað laugardaginn 18. október síðastliðinn.

Félagið er til heimils að Suðurlandsbraut 4.

Rauðsól ehf. greiðir 1,5 milljarða króna fyrir fjölmiðla 365 og tekur auk þess yfir 2 milljarða af skuldum félagsins.