Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,61% í dag og endaði í 1,850 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 41,13%.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 1,23% í 164 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Eimskips hækkaði einnig um 0,21% í aðeins 23 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda um 2,33% í 160 milljóna króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa Icelandair um 0,72% í 199 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 0,76 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 674 milljónir króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,7% í dag í 0,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 0,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,3 milljarða króna viðskiptum.