Hlutabréf í Evrópu hafa lækkað það sem af er degi en líkt og í gær eru það óvissa fjárfesta um svokallaðar björgunaraðgerðir bandarískra yfirvalda sem valda lækkunum á mörkuðum í dag að sögn Reuters fréttastofunnar.

Þannig hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 1,7% það sem af er degi og eru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiða lækkanir dagsins.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 2,2%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 1,3% og í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 0,9%.

Í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 1,8% og í Sviss hefur SMI vísitalan lækkað um 0,7%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 2,1%, í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 2,4% og í Stokkhólmi hefur OMXS vísitalan lækkað um 2%.