Forseti Íslands sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í athöfn á Bessastöðum í dag. Meðal þeirra er Ragnar Axelsson, Raxi, ljósmyndari á Morgunblaðinu. Fékk hann riddarakross fyrir framlag til ljósmyndunar og umfjöllun um lífshætti frumbyggja á norðurslóðum.

Hér að neðan er listi yfir þá tólf einstaklinga sem sæmdir voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu:

  1. Ágústa Þorkelsdóttir bóndi, Refsstað Vopnafirði, riddarakross fyrir störf í þágu dreifbýlis og heimabyggðar
  2. Björgvin Halldórsson tónlistarmaður, Hafnarfirði, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar
  3. Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar
  4. Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar gull- og silfursmíði
  5. Jón Karl Karlsson fyrrverandi formaður Verkamannafélagsins Fram og Alþýðusambands Norðurlands, Sauðárkróki, riddarakross fyrir störf í þágu verkalýðsmála og réttindabaráttu
  6. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fyrrverandi sveitarstjóri, oddviti og alþingismaður, Reykhólahreppi, riddarakross fyrir framlag til félagsmála á landsbyggðinni
  7. Karl M. Guðmundsson fv. íþróttakennari og fræðslustjóri ÍSÍ, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að æskulýðs- og íþróttamálum
  8. María Jóna Hreinsdóttir ljósmóðir, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjendastörf í þágu fósturgreiningar og ljósmóðurfræða
  9. Pétur Gunnarsson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta
  10. Ragnar Guðni Axelsson ljósmyndari, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til ljósmyndunar og umfjöllun um lífshætti frumbyggja á norðurslóðum
  11. Rannveig Löve fyrrverandi kennari, Kópavogi, riddarakross fyrir brautryðjandastarf á sviði lestrarkennslu og störf að málefnum berklasjúklinga
  12. Sigurgeir Guðmundsson formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Hellu, riddarakross fyrir forystu á sviði björgunar og almannavarna