Meginefni fundar Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra og Alistairs Darlings, fjármálaráðherra Bretlands, var að æskilegt væri að færa innstæðureikninga hjá útibúi Landsbankans í London í breskt dótturfélag.

Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherrans við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Framsóknarflokks. Svarinu hefur verið dreift á Alþingi.

Umræddur fundur átti sér stað 2. september og auk Björgvins sóttu fundinn af Íslands hálfu sendiherra Íslands í Bretlandi, ráðuneytisstjórinn í viðskiptaráðuneytinu, ráðuneytisstjórinn í fjármálaráðuneytinu, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu og aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.

,,Á fundinum ræddu ráðherrarnir almennt um aðstæður á mörkuðum og viðskipti landanna. Meginefni fundarins var um það að æskilegt væri að færa innstæðureikninga hjá útibúi Landsbankans í London í breskt dótturfélag," segir í svarinu.

,,Bresk stjórnvöld höfðu unnið að því um nokkurt skeið ásamt íslenskum stjórnvöldum að fá Landsbankann til að flytja innstæður svokallaðra Icesave-reikninga úr útibúinu í breskt dótturfélag. Bresk stjórnvöld gerðu mjög stífar kröfur um flutning eigna Landsbankans til Bretlands og um tímamörk fyrir eignaflutninginn."

Landsbankanum yrði gefinn eðlilegur frestur

Tilgangurinn með fundinum var, að því er fram kemur í svarinu, að fara fram á að bresk stjórnvöld heimiluðu að innlánsreikningarnir yrðu fluttir í breskt dótturfélag strax, en að Landsbankanum yrði gefinn eðlilegur frestur til skipulegs flutnings á eignum á móti innstæðum þannig að fjármögnunarsamningar bankans röskuðust sem minnst.

Siv óskaði eftir því, í fyrirspurn sinni, að ráðherrann birti í svarinu minnisblöð sem tengdust fundinum. Í svarinu segir að ráðherrann hafi ekki tekið saman formlegt minnisblað um fundinn ,,annað en það sem fram kemur að ofan um efni fundarins,"   segir í svarinu.