Til að auka ferðalög Kínverja til Íslands er mikilvægt að koma á beinu flugi á milli landanna. Þetta var á meðal þess sem fram kom á fundi Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra og Jin Fang formanns ferðamálaráðs Shanghai a fundi þeirra í Shanghai fyrr í gær. Fré þessu er greint í frétt á heimasíðu ráðherrans. Þar kemur einnig fram að Jin Fang fagnaði sérstaklega miklum viðskiptum Air Atlanta við kínverska samstarfsaðila og því að Icelandair skuli þegar leigja 10 Hainan Airlines þotur.

Fundurinn var haldinn í lok opinberrar heimsóknar samgönguráðherra til Kína en þar hefur hann meðal annars sótt stærstu ferðasýningu í Asíu, sem haldin var í Kunming að þessu sinni og fjögur íslensk ferðaþjónustufyrirtæki tóku þátt í auk Ferðamálaráðs og sendiráðs Íslands í Peking. Sturla Böðvarsson átt að þessu tilefni fundi með ferðamálaráðherra Kína og öðrum framamönnum í kínverskri ferðaþjónustu. Næsta ferðasýning kínverska ferðamálaráðuneytisins verður haldin í Shanghai á næsta ári og er gert ráð fyrir enn fleiri íslensk fyrirtæki taki þátt í henni.