Stjórn Icelandair Group hf. ákvað í dag að samþykkja áskriftir fyrir 1.059.000.000 nýrra hluta sem boðnir voru í almennu hlutafjárútboði sem lauk 23. desember sl.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group en alls bárust 852 áskriftir fyrir samtals 2.855.633.620 bréfa. Nýju bréfunum verður útdeilt á milli hluthafa, starfsmanna og almennings.

Fram kemur að núverandi hluthafar skráðu sig fyrir 1.555.811.956 hlutum, starfsmenn fyrir 79.924.664 hlutum og almenningur fyrir 1.219.897.000hlutum.

Starfsmenn nutu forgangs að 160.000.000 hlutum og þar sem ekki barst full áskrift munu útistandandi hlutir bætast við þá sem boðnir voru almenningi. Verður því 180.075.336 hlutum útdeilt til almennings í stað 100.000.000. Stjórn félagsins hefur ákveðið að allar áskriftir starfsmanna verði samþykktar.

Þá kemur einnig fram að stjórn félagsins hefur ákveðið að allar áskriftir sem bárust frá almenningi fyrir –allt að 200.000 hluti verði samþykktar. Áskriftum umfram 200.000 kr. verður útdeilt hlutfallslega til viðeigandi aðila.

Greiðsluseðlar verða sendir út 30. desember 2010 og verður síðasti greiðsludagur þeirra 6. janúar 2011. Nýju hlutirnir eru sambærilegir núverandi hlutum í félaginu að öllu leiti. Félagið gerir ráð fyrir að nýju hlutirnir verði gefnir út í fyrsta lagi 10. janúar 2011 og teknir til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ OMX á Íslandi eigi fyrr en 11. janúar 2011.