Reginn hefur ákveðið að falla frá kaupunum á fasteignafélaginu E6 ehf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Regins til Kauphallarinnar.

Þann 21. desember 2016 var tilkynnt um að undirritun kauptilboðs á milli Regins hf. og eigenda fasteignafélagsins U6 ehf., um kaup Regins á öllu hlutafé í félaginu, eins og Viðskiptablaðið hefur áður fjallað um. Fram kom að kauptilboðið væri meðal annars með fyrirvörum um áreiðanleikakannanir.

Eftir að endanlegar niðurstöður áreiðanleikakannana lágu fyrir hafa átt sér stað viðræður milli aðila. Hefur sú niðurstaða nú orðið að Reginn hf. hefur ákveðið að falla frá kaupunum segir í tilkynningunni.