Verð á fasteignamarkaði er hóflegt, að mati Greiningardeildar Arion banka en deildin spáir 7-8% verðhækkunum á fasteignamarkaði á næstu tveimur árum. Deildin segir að hlutfallið á milli kaupverðs og leiguverðs sé í sögulegu lágmarki í dag.

Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Arion banka, segir þessa þróun á leiguverði ekki geta haldið áfram til eilífðar.