Borgarráð hefur samþykkt ráðningu Regínu Ásvaldsdóttur, bæjarstjóra á Akranesi, í stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Starfið var auglýst þann 7. janúar og sóttu 11 manns um stöðuna en tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Það var samdóma álit valnefndar sem fór yfir umsóknir og tók viðtöl við umsækjendur að Regína Ásvaldsdóttir uppfyllti best umsækjenda þær kröfur sem gerðar eru til starfs sviðsstjóra og fram komu í auglýsingu um starfið, kemur fram í tilkynningunni. Hér er hægt að sjá hverjir sóttu um stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs.

Hefur verið bæjarstjóri Akraness síðustu fjögur ár

Regína hefur gengt stöðu bæjarstjóra á Akranesi síðustu fjögur ár. Hún starfaði hjá Reykjavíkurborg á árunum 1997 til 2011 í ýmsum stjórnunarstöðum þar á meðal í velferðarþjónustu. Hún var skrifstofustjóri borgarstjóra á árunum 2008 til 2011, sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs 2004- 2007 og framkvæmdastjóri Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness 1997 til 2002. Auk þess sinnti hún víðtækum stjórnkerfisbreytingum hjá Reykjavíkurborg.

Regína er félagsráðgjafi að mennt, með cand. mag gráðu í félagsráðgjöf og afbrotafræði frá Háskólanum í Osló og meistaranám í hagfræði með áherslu á breytingastjórnun og nýsköpun frá Háskólanum í Aberdeen.

Auk stjórnunarstarfa hefur Regína sinnt víðtækum breytingastjórnunarverkefnum og verið stundakennari við háskólann á Bifröst og við háskóla íslands þar sem hún hefur kennt stefnumótun og breytingastjórnun.