Gengi bréfa Regins hækkaði mest í Kauphöll Íslands af þeim félögum sem þar eru skráð. Félagið hækkaði um 0,8% í 119 milljóna króna viðskiptum og er gengi bréfanna nú 9,5 krónur á hlut. Það hefur aldrei verið hærra. Gengi bréfa Haga og Icelandair Group hækkaði einnig, Hagar um 0,55% í 117 milljóna króna viðskiptum og endaði gengi bréfa í Högum í 18,4 krónum á hlut.

Lítil velta var á bak við 0,5% hækkun á gengi bréfa Icelandair Group eða einungis rúmlega 281 þúsund krónur.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,12% í dag og endaði í 1.004,25 stigum. Samtals var hlutabréfavelta í Kkuphöllinni um 248 milljónir króna í dag.