Hlutabréf fasteignafélagsins Regins hækkaði um 2,86% í dag í tæplega 111 milljóna króna veltu í dag. Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins hefur aldrei verið hærra en það er 8,95 krónur á hlut.

Icelandair Group hækkaði um 0,86%, Marel um 0,37% og Hagar um 0,28%.

Gengi hlutabréfa Össurar stóðu í stað og engin viðskipti voru með bréf Bank Nordik.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,41% í dag og endaði hún í 989,14 stigum. Heildarveltan í dag var rúmlega 313 milljónir króna.