Kaupsamningur var undirritaður í dag um kaup fasteignafélagsins Regins og Vistar ehf. Fasteignir Vistar eru Ármúli 4 og 6 í Reykjavík, Kaupvangur 3b í Fljótsdalshéraði  auk hluta í Austurveg 10, lóð við Austurveg 8a, Árborg og Hafnarstræti 1, Ísafirði. Stærð eignarhlutar fasteigna félagsins er um 4.200 m2.

Kaup á þessu fasteignafélagi eru hluti af samkomulagi um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum, en þetta samkomulag var kynnt þann 14. febrúar síðastliðinn. Þegar hefur verið tilkynnt  um kaup á hinum þremur fasteignafélögunum.

Í tilkynningu sem Reginn sendi Kauphöllinni í dag segir að kaup þessi fylgi fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði.

Reginn er eina skráða fasteignafélag á Íslandi í Kauphöllinni.