Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 5,49% í Kauphöllinni í dag. velta með hlutabréfin nam 156 milljónum króna. Þetta var mesta hækkunin í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Eimskips um 2,78%, Icelandair Group um 0,29% og N1 um 0,27%.

Á móti féll gengi bréfa Össurar um 3,43%, gengi bréfa Vodafone lækkaði um 0,9%, TM fór niður um 0,78%, bréf Marel um 0,37% og VÍS um 0,09%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,32% og endaði hún í 1.245 stigum. Heildarvelta í Kauphöllinni nam 1.358 milljónum króna. Sem fyrr var mesta veltan með hlutabréf Icelandair Group eða fyrir rúmar 638 milljónir króna.