Reginn fasteignafélag hefur valið Nýherja til að annast rekstur á tölvu- og netkerfum félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja.

Í tilkynningunni segir Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja að það sé mikil viðurkenning fyrir félagið að eiga áfram samleið með félagi eins og Reginn en fyrirtækin hafa áður átt samstarf.

„Öryggi, hagkvæmni og frumkvæði frá sérfræðingum í upplýsingatækni eru lykilþættir þegar kemur að því að velja samstarfsaðila á þessu sviði. Við höfum átt mjög gott samstarf við Nýherja á liðnum árum og hlökkum til þess að eiga áfram samleið með félagi, sem hefur markað sér skýra sýn í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á þjónustugæði,“ segir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins í tilkynningunni.