Samþykkt var í borgarráði í dag að ganga til samninga við Reginn hf. um að fimleikahús verði reist við Egilshöll. Reginn mun eiga þá byggingu og leigja til Reykjavíkurborgar eins og önnur mannvirki við Egilshöll. Fimleikahúsið ásamt tengibyggingu við núverandi mannvirki verður um 2.250 fermetrar.

Áætlað er að hönnun og bygging fimleikahúss verði boðin út í alútboði og gert er ráð fyrir að húsið verði fullgert að hausti 2015. Samhliða hefur Reginn hafið undirbúning og viðræður við aðila um ýmiss konar nýja þjónustu og starfsemi í núverandi byggingum við Egilshöll sem fyrirhugað er að verði þar. Þetta er t.d. einkarekinn leikskóli með áherslu á íþróttir og hreyfingu og ýmsa þjónustu tengda íþróttum og heilsu.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að nýjar fjárfestingar í Egilshöll, vegna samnings við Reykjavíkurborg, séu áætlaðar um 600 milljónir króna og hafa þegar verið fjármagnaðar. Áhrif þess samnings á EBITDA Regins eru innan við 2 % til hækkunar.