Reginn hf. og Landstólpar þróunarfélag ehf.  hafa undirritað samkomulag um að hefja einkaviðræður um kaup Regins á öllu verslunar- og þjónusturými á reitum 1 og 2 við Austurhöfn, eða svokölluðum Hörpureit. Alls er um að ræða um 7.800 m2. útleigurými sem að megninu til er staðsett á 1. og 2. hæð bygginganna. Gera má ráð fyrir að jöfn skipting geti verið á milli verslunar- og þjónustustarfsemi í þessari einingu.

Landstólpar þróunarfélag ehf., sem fer með sameiginlegt forræði lóðanna, er í meirihlutaeigu Stólpa ehf.  Stefnt er að því að ljúka viðræðum innan tveggja mánaða með undirritun kaupsamnings.

Að mati Regins er um að ræða áhugavert svæði sem mun styrkja og efla miðbæ Reykjavíkur sem verslunar- og þjónustusvæði. Ef af kaupsamningi verður yrði þetta um 3,5% aukning á eignasafni Regins mælt í fermetrum en fyrir á félagið um 220 þúsund m2 af fasteignum, þar af eru um 90 þús.m2 verslunarhúsnæði.

Í tilkynningu frá Regin segir að undirritað samkomulag aðila sé háð skilyrðum og fyrirvörum. Vakin er athygli á að um er að ræða einkaviðræður um kaup og er því töluverð óvissa um hvort af kaupum Regins verður.