Stjórn FME samþykkti þann 30. júní sl. reglur um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja. Reglurnar kveða á um hvernig standa megi að afkomutengdu hvatakerfi í fjármálafyrirtækjum, svnefndum bónusgreiðslum.

Í frétt á heimasíðu FME segir að reglurnar setji ákveðna mælikvarða á hámark kaupauka. Á ársgrundvelli má kaupauki starfsmanns ekki nema hærri fjárhæð en 25% af árslaunum viðkomandi án kaupauka. Fresta skal greiðslu hluta af kaupauka um að lágmarki 3 ár, þannig að unnt sé að taka tillit til sveiflna í viðskiptalífinu og hagkerfinu sem geta haft áhrif á árangur.

eglurnar leggja einnig bann við tryggðum kaupauka, þ.e.a.s. kaupauka sem starfsmaður fær óháð árangri í starfi. Þá er mælt fyrir um lækkun, afturköllun eða endurgreiðslu kaupauka þegar mælikvarða um árangur í starfi er ekki náð.

Reglur um kaupaukakerfi,