Eftir lokun markaðar í gær seldi Reimar Pétursson ehf. allan eignarhlut sinn í Atorku Group hf, eða 38.756.198 hluti að nafnvirði til félagsins á genginu 6,32 eða að kaupverði krónur 244.646.565. Greiðsludagur er sama dag. Þar með fellur niður söluréttur sem félagið hafði áður gert við Reimar Pétursson.
Reimar Pétursson lét af störfum sem framkvæmdastjóri hjá Atorku Group 23. mars.