Í stjórnarfundi BNbank þann 7. desember voru gerðar breytingar á stjórn bankans. Frank O. Reite, framkvæmdastjóri Íslandsbanka í Noregi, tekur sæti Jóns Diðriks Jónssonar, framkvæmdastjóri Fjárfestinga- og alþjóðasviðs Íslandsbanka, í stjórn BNbank. Reite var jafnframt kjörinn formaður stjórnar. Borger A. Lenth verður varaformaður stjórnar segir í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallarinnar.