Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum lauk í gær þann 5. júní, en boðin voru til sölu skuldabréf í nýjum verðtryggðum flokki, REITIR150529, sem óskað verður eftir að skráður verði í kauphöll.

Jafnframt var eigendum skuldabréfa í flokknum REITIR151124 boðið að greiða fyrir kaup á nýju skuldabréfunum með skuldabréfum sínum í þeim flokki. Verð skuldabréfa í flokknum REITIR151124 var fyrirframákveðið og svarar til 2,55% ávöxtunarkröfu til uppgjörsdags.

Samtals bárust tilboð að nafnvirði 7.513.602.644 króna og var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 7.413.602.644 króna á ávöxtunarkröfunni 2,79%. Þar af var tekið við bréfum að nafnvirði 3.565.617.596 krónur í flokknum REITIR151124.

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð þriðjudaginn 18. júní næstkomandi og óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.