Í 33. viku 2018 keypti Reitir fasteignafélag hf.1.122.203 eigin hluti fyrir 90.851.713 króna. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar

Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 22. mars 2018, er nú lokið og hefur áætlun félagsins um kaup á eigin bréfum verið náð.

Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 16.500.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 1.500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 31. janúar 2019 nema öðru hvoru framangreindra marka yrði náð áður. Félagið hefur nú keypt samtals 16.500.000 hluti fyrir samtals 1.416.574.456 króna og er því framangreindu marki um fjölda keyptra hluta náð. Reitir eiga nú samtals sem nemur 2,34% af heildarhlutafé félagsins.

Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik.