Reitir fasteignafélag hf. lauk í gær sölu á nýju hlutafé að andvirði 17 milljarða króna. Salan var liður í endurfjármögnun þess, en jafnframt hefur verið samið um 51 milljarðs lánsfjármögnun með sölu skuldabréfa og nýjum bankalánum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Eldri hluthafar Reita fasteignafélags hf. keyptu hlutabréf fyrir 5 milljarða, sem þeir áttu forgangsrétt að, en hlutabréf fyrir 12 milljarða voru seld til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Gildis-lífeyrissjóðs og lífeyrissjóða í eignastýringu hjá Arion banka, sem eignuðust við það 31% hlut í Reitum fasteignafélagi hf. Stærstu einstöku eigendur félagsins eru eftir sem áður Arion banki sem á 31% hlut og Landsbankinn með 22%.

Framangreindir lífeyrissjóðir keyptu einnig skuldabréf af Reitum fasteignafélagi hf. fyrir 25 milljarða króna. Þar er um að ræða nýjan skuldabréfaflokk sem Reitir fasteignafélag hf. gefur út. Jafnframt sömdu Reitir við Íslandsbanka um lánveitingu til félagsins sem nemur 26 milljörðum króna. Þessi fjármögnun er öll verðtryggð, til 30 ára og á hagstæðari kjörum en fyrri verðtryggð lán félagsins. Önnur vaxtaberandi lán Reita nema tæpum 5 milljörðum króna. Fjármagnskostnaður félagsins verður eftir þetta að meðaltali 4,0% af verðtryggðum lánum.

Stefna að skráningu vorið 2015

Stjórn Reita fasteignafélags hf. stefnir að því að óska eftir skráningu á hlutabréfum Reita og skuldabréfaflokki í Kauphöll Íslands í apríl á næsta ári. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka mun hafa umsjón með fyrirhugaðri skráningu og í tengslum við hana áformar bankinn að selja hluta af eignarhlut sínum í félaginu.

„Viðskiptin, sem hér um ræðir, eru meðal þeirra stærstu að fjárhæð til sem átt hafa sér stað með íslenskt einkafyrirtæki og ein stærstu viðskipti sem lífeyrissjóðir landsins hafa átt hlutdeild að. En fyrir nýja og eldri hluthafa Reita skiptir mestu að félagið á verðmætt og vel valið eignasafn, reksturinn er stöðugur, sem er til marks um trausta viðskiptavini, og fjárhagsstaðan er gríðarlega sterk, sem gerir félaginu kleift að vera virkari þátttakandi á leigumarkaði með atvinnuhúsnæði. Framtíð Reita er því björt og við erum að búa okkur undir kauphallarskráningu á hlutabréfum og skuldabréfum félagsins næsta vor,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.