Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 10. mars næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í tveimur skuldabréfaflokkum, REITIR151244 og REITIR151124, sem báðir eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Kemur þetta fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 4,4 milljarðar króna. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hvorum flokki. Fjárfestingabankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu.