Matsfyrirtækið Reitun hefur hækkað grunneinkunn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í B-. Árangur í rekstri OR er höfuðástæða þess að einkunnin hækkar. Heildareinkunn OR er áfram B+.

Í tilkynningu frá OR er bent á að samantekt skýrslu Reitunar segi:

„Í öllum meginatriðum fylgir félagið áætlunum sínum, arðsemismarkmiðum rekstrar og uppbyggingu handbærs fjár þrátt fyrir rekstrartap sem myndast vegna neikvæðrar þróunar gengis og álverðs. Skuldahlutföll hafa lækkað og það styttist í að þau verði viðunandi. Bókfært virði eigna í árslok 2011 stenst virðisrýrnunarpróf sem byggir á markmiðum fyrirtækisins um arðsemi og verðlagningu.

Reykjavíkurborg hefur sýnt það og sannað að hún er öflugur bakhjarl fyrir félagið og getur stutt það fjárhagslega þegar þörf er á og vilji er til. Reitun hefur í kjölfarið ákveðið að hækka grunneinkunn um eitt þrep í B- en heildareinkunn helst þrátt fyrir það óbreytt í B+. Forsendur fara að myndast til að huga að endurmati til hækkunar á heildareinkunn ef þróun heldur áfram sem verið hefur og félagið dragi enn frekar úr markaðsáhættu sinni. Áður en það verður gert þarf að skoða betur fjárhagslega burði eigenda til að standa við ábyrgð sína ef þörf krefði.“