Rekstrarafkoma A- og B hluta sveitarfélagsins Norðurþings, sem inniheldur Húsavík, er áætluð jákvæð um 156 milljónir á næsta ári, en um 123 milljónir í ár.

Fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2018 var samþykkt á sveitarstjórnarfundi í gær. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun 2019-2021, en hún gerir ráð fyrir 115 milljóna afgangi árið 2019, 126 milljónum árið 2020 og 129 milljónum árið 2021.

Sveitarfélagið gerir ráð fyrir tæplega 3,1 milljarðs króna tekjum í ár, en að þær fari upp í 3,27 milljarða á næsta ári, þá miðað við A hluta. Útgjöldin lækki hins vegar úr 3.025 milljónum niður í 2.935 milljónum. Fjármagnsliðir fari svo úr 24 milljónum í frádrátt í ár niður í 81 milljón á næsta ári.

160 milljónir í ný lán og eldri lán borguð niður um 259 milljónir

Samkvæmt yfirliti um sjóðsstreymi á árinu 2018 verður veltufá frá rekstri A og B hluta um 658 milljónir og fjárfestingahreyfingar um 713 milljónir. Munar þar mestu um slökkvistöð, félagslegar íbúðir, gatnagerð og framkvæmdir Orkuveitu Húsavíkur. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði ný lán vegna framkvæmdanna upp á 160 milljónir og afborganir lána verði um 259 milljónir.

Handbært fé A og B hluta sveitarfélagsins verði þá 304 milljónir í lok árs.

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eignasjóð og þjónustumiðstöð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.

Fyrirtækin eru:

Dvalarheimi aldraðra sf., Félagslegar íbúðir, Hafnasjóður Norðurþings, Orkuveita Húsavíkur ohf., Leigufélagið Hvammur ehf. og Fjárfestingafélag Norðurþings ehf.

Á árinu 2018 er gert ráð fyrir að Leigufélag Hvamms ehf. verði fært í nýtt félagsform, húsnæðissjálfseignarstofnun.