Afgangur af rekstri Kópavogsbæjar nemur rúmum milljarði króna samkvæmt endandlegum ársreikningi sem undirritaður var í gær. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 82 milljóna króna afgangi.

Eigið fé samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi A og B hluta nam 15,5 milljörðum króna í árslok 2013 en eigið fé A hluta nam 16,5 milljörðum króna.