Á hluthafafundi Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem haldinn var í dag, var tekin ákvörðun um að breyta nafni félagsins í Stefnir hf.

Þetta kemur fram í tilkynninu til Kauphallarinnar en heimildir Viðskiptablaðsins herma að Stefnir hafi verið eitt af þeim nöfnum sem íhugað var fyrir Nýja Kaupþing, sem hefur nú tekið upp nafnið Arion Banki.

Stefnir hf. rekur fjölbreytt úrval sjóða um sameiginlega fjárfestingu, þ.m.t. fagfjárfestasjóðinn KB ABS 12, sem er í viðskiptum í Kauphöllinni.