Íslenska ríkið og Samtök ferðaþjónustunnar stofnuðu í dag formlega sérstakt sameignarfélag utan um rekstur Stjórnstöðvar ferðamála. Nafn þess er Rekstrarfélag Stjórnstöðvar ferðamála og er í 50% eigu ríkissjóðs og 50% eigu Samtaka ferðaþjónustunnar.

Stjórnstöð ferðamála er samráðsvettvangur, skipaður af forsætisráðherra milli ríkisstjórnar Íslands, Samtaka ferðaþjónustunnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um eflingu íslenskrar ferðaþjónustu til ársins 2020.

Tilgangur hins nýstofnaða félags er að halda utan um starfsmannamál og almennan rekstur Stjórnstöðvar ferðamála.

Stjórnstöð ferðamála er ætlað að starfa til ársins 2020 og var Hörður Þórhallsson ráðinn framkvæmdastjóri tímabundið til sex mánaða til að koma verkefninu af stað. Hann mun hverfa til annarra starfa og starf framkvæmdastjóra verður því auglýst laust til umsóknar á næstunni.