Rekstrarfélög tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu hafa nú öll verið sameinuð í eitt. Greint var frá fyrirætlunum stjórnenda Hörpu þessa efnis í nóvember.

Hið sameinaða félag heitir „Harpa - tónlistar- og ráðstefnuhús ehf.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir jafnframt að sameiningin sé liður í að efla rekstur Hörpu og einfalda félagauppbygginguna í kringum húsið.Samrunaferlinu í heild lýkur í lok janúar.

Nýja stjórn Hörpu skipa Helga Jónsdóttir, formaður, Haraldur Flosi Tryggvason, varaformaður, Pétur Ásgeirsson, Helga Margrét Reykdal, Kjartan Örn Ólafsson, Þórunn Sigurðardóttir og Svanhildur Konráðsdóttir. Forstjóri Hörpu er Halldór Guðmundsson.