Hagstofan áætlar að árlegur rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum landsins séu nú 1.809.589 krónur. Er það aukning um 9,6% frá árinu 2015 þegar kostnaðurinn var 1.651.002 krónur.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar , en útreikningurinn skal byggður á ársreikningum sveitarfélaga fyrir liðið ár, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga til þess dags sem útreikningur er gerður, segir á vef stofunnar. Verðlagsbreytingar skulu svo taka mið af almennum launahækkunum starfsmanna grunn­skóla og breytingum á vísitölu neysluverðs að teknu tilliti til vægis hvors þáttar fyrir sig í rekstrarkostnaði grunnskólanna.