Rekstrartekjur Kögunar ehf. jukust um 1.747 milljónir kr. á síðasta ári eða 24% frá árinu 2006. EBITDA af reglubundinni starfsemi er 1.080 milljónir kr. og eykst um 209 milljónir kr. eða 24% á milli ára. Innri vöxtur í veltu samstæðunnar nam 15% á milli ára. Innri vöxtur EBITDA nam 18% á milli ára. Framlegð jókst um 438 milljónir kr. eða 25% frá árinu 2006 og var nokkuð umfram áætlanir. Hagnaður samstæðunnar fyrir skatta er 837 milljónir kr, hagnaður eftir skatta er 645 milljónir kr.

Í ofangreindum samanburði hefur verið tekið tillit til aflagðrar starfsemi í kjölfar breytinga á samstæðu Kögunar í árslok 2006. Innn ehf. bætist við samstæðuna þann 1. september 2007 og var í kjölfarið sameinað Eskli ehf. tilkynningu kemur fram að rekstur Kögunarsamstæðunnar á árinu 2007 hefur gengið vel og er afkoma nær allra fyrirtækja innan samstæðunnar yfir áætlunum. Mikil eftirspurn hefur verið eftir þeirri þjónustu sem samstæðan veitir ásamt því að gengið hefur verið frá framlengingu á nokkrum stórum samningum á árinu og nýir sigrar unnist. Unnið hefur verið að frekari samþættingu og hagræðingu og hefur margt áunnist í þeim efnum þó enn séu tækifæri til að gera enn betur.  Stjórnendur Kögunar ehf eru mjög ánægðir með uppgjörið og bjartsýnir á að rekstur samstæðunnar gangi vel á  komandi ári.

Samstæða Kögunar hf. samanstendur í dag af fjórum félögum þ.e. Kögun ehf., Skýrr ehf., EJS, ehf, og Eskli ehf. Á síðasta ári, og á árinu 2007, hafa þær breytingar orðið helstar að Verk- og kerfisfræðistofan hf. og Kögurnes hf. hafa sameinast Kögun ehf. Skýrr ehf og Teymi ehf sameinuðust á síðasta ári. EJS ehf. færðist úr því að vera dótturfélag Skýrr ehf yfir í dótturfélag Kögunar ehf og  Eskill ehf færðist úr því að vera dótturfélag EJS ehf. yfir í að vera dótturfélag Kögunar ehf. Innn ehf. sem var keypt í september var sameinað Eskli ehf. frá og með 1. september 2007. Með þessum breytingum, og tilfærslum ákveðinna verkefna, hefur verið skerpt á áherslum einstakra félaga innan  samstæðunnar og samlegð í rekstri og verkefnavinnslu aukin til muna.  Kögun ehf. er hluti af samstæðu Teymis hf. sem er skráð í Kauphöll Íslands.

Eins og fram hefur komið að ofan þá hefur samstæða Kögunar ehf. breyst umtalsvert á síðastu tveimur árum. Kögun ehf. er nú hluti af Teymi hf. sem er öflugasta fjarskipta- og upplýsingatæknifyrirtæki landsins. Hlutverk Kögunar í  þeirri samstæðu er að vaxa markvisst á innanlandsmarkaði og styrkja enn frekar  stöðu sína og dótturfélaga sem leiðandi fyrirtækja á upplýsingatæknimarkaði. Heildarfjöldi starfsmanna innan samstæðu Kögunar ehf. var um síðustu áramót     ríflega 500 manns og hefur fjöldi starfsmanna vaxið nokkuð á síðustu mánuðum. Verkefnastaða allra félaganna er góð og árið 2008 fer vel af stað.