Rekstrarkostnaður bankanna á föstu verði hefur aukist verulega á hverju ári frá hruni. Rekstur 14 lánastofnana árið 2011 kostaði 30% meira á föstu verði en rekstur 32 lánastofnana fyrir áratug síðan og jafnast á við tvo Landsspítala í dag. Að mati samkeppniseftirlitsins gefur þetta til kynna að samkeppnisaðhaldi í bankaþjónustu sé áfátt því samkeppni hvetur fyrirtæki til hagræðingar.

Kemur þetta fram í nýrri skýrslu eftirlitsins sem ber heitið Fjármálaþjónusta á krossgötum. Þar segir einnig að viðskiptavinir bankanna greiði rekstrarkostnaðinn dýru verði með óhagstæðum viðskiptakjörum. Mikill vaxtamunur í alþjóðlegu samhengi leggst þungt á heimili og fyrirtæki og dregur úr samkeppnishæfni hagkerfisins.

Sá vandi sem endurspeglast í háum rekstrarkostnaði bankanna og þar með háum vaxtakostnaði heimila og fyrirtækja er mikill og ekki auðleystur að mati eftirlitsins. Einn möguleiki sem oft er nefndur í þessu sambandi er samruni tveggja af stóru bönkunum. Samkeppniseftirlitið hefur talað mjög skýrt um það að samrunar stærri banka séu ekki lausn á þessum vanda. Skert samkeppni sem myndi að líkindum fylgja slíkum samrunum, myndi þvert á móti skaða neytendur og samkeppnishæfni atvinnulífsins.