„Rekstur Icelandair Group [ ICEAIR ] á fyrsta ársfjórðungi er nokkru betri en við gerðum ráð fyrir, í mun erfiðara árferði en á síðasta ári," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group í fréttatilkynningu.

Tap Icelandair var 1,7 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi en félagið tapaði 1,2 milljörðum króna á sama  tíma  í fyrra. Vegna árstíðasveiflu í flugi og ferðaþjónustu er afkoma jafnan neikvæð á fyrsta ársfjórðungi og nú var EBITDA neikvæð um 857 milljónir króna.

„Eldsneytiskostnaður félagsins hefur aukist um tæpan einn milljarð króna frá sama tíma 2007, auk þess sem að á fyrsta ársfjórðungi í fyrra var færður til bókar tæplega 1,2 milljarða króna söluhagnaður eigna.

Verkefnastaða okkar í leiguflugsviðskiptum er góð sem og bókunarstaða í áætlunarflugi. En við sjáum fram á viðvarandi hátt eldsneytisverð og gerum ráð fyrir að það muni, ásamt ótryggu efnahagsástandi, hafa áhrif á eftirspurn í flugi og ferðaþjónustu.

Eitt helsta viðfangsefni okkar nú er að fást við þessar breyttu aðstæður og gera félagið í stakk búið til að takast á við nýja framtíð.

Við erum að laga fyrirtækin innan Icelandair Group að þessum veruleika, auka snerpu þeirra og sveigjanleika. Við höfum einfaldað skipulag samstæðunnar og Sigþór Einarsson verður aðstoðarforstjóri. Nýráðinn framkvæmdastjóri Icelandair, Birkir Hólm Guðnason, hefur nú þegar gert breytingar innan Icelandair og mun halda þeim áfram. Samið hefur verið um útleigu á fyrstu Boeing 787 Dreamliner breiðþotunni sem félagið á í pöntun. Fallið hefur verið frá vaxtaráformum hjá Icelandair Cargo. Ákveðið hefur verið að félagið hasli sér völl á ný í ferðaskrifstofurekstri. Samið hefur verið við flugstéttir til skamms tíma.

Með þessum aðgerðum og fleirum erum við að treysta grunnrekstur okkar, draga úr áhættu og styrkja Icelandair Group til framtíðar."