Kjöthöllin ehf. skilaði 7,7 milljón króna tapi á síðasta ári samanborið við 10,3 milljónakróna tap árið áður samkvæmt ársreikningi félagsins. Tekjur félagsins námu 330 milljónum og drógust saman um 25% frá fyrra ári. Rekstrargjöld félagsins námu 338 milljónum og drógust saman um 8,4% milli ára.

Eignir félagsins námu 78 milljónum í lok árs og lækkuðu um 6 milljónir milli ára. Eigið fé í lok árs var 50 milljónir króna og eignfjárhlutfall var 64% en var 68% árið áður.