Hagnaður Orkuveitusamstæðunnar á fyrri helmingi ársins 2014 nam 3,8 milljörðum króna og rekstrar-hagnaður (EBIT) var 7,5 milljarðar króna. Eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur nemur nú 83,5 milljörðum og hefur meira en tvöfaldast frá árslokum 2009. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Planið , sem staðfest var með samningi milli Orkuveitunnar og eigenda fyrirtækisins, var gert til tæplega sex ára og gildir út árið 2016. Markmið þess var að skila samstæðunni liðlega 50 milljarða króna betri sjóðstöðu, fyrst og fremst með sparnaði í rekstri, en einnig með eignasölu, láni frá eigendum og auknum tekjum. Um mitt ár 2014, þegar tímabil Plansins var liðlega hálfnað, áttu aðgerðirnar að hafa skilað 39,8 milljörðum króna. Niðurstaðan er hinsvegar 46,4 milljarðar sem er 17% umfram markmið. Áfram verður unnið eftir Planinu til ársloka 2016.

Tekjur samstæðu Orkuveitunnar minnka frá fyrri hluta árs 2013 og er helsta ástæða þess lágt álverð, sem dregur úr tekjum af raforkusölu. Álverð hefur hækkað nokkuð frá uppgjörsdegi og því ekki útilokað að tekjur af raforkusölu rétti úr kútnum áður en árið er úti. Verulegur árangur hefur náðst í að verja rekstur Orkuveitunnar fyrir sveiflum í álverði, vöxtum og gengi með samningum við erlendar fjármálastofnanir.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að gengið hafi prýðilega að ná tökum á rekstri Orkuveitunnar og nú sést árangur þess í traustari efnahag fyrirtækisins. Eiginfjárhlutfallið, sem nú er um 30%, hefur vaxið ört eftir því sem batnandi afkoma hefur gert þeim fært að borga niður skuldir.