Rekstrarafgangur Árborgar, A og B hluta, var 172 milljónir króna í fyrra. Árið 2009 var 449 milljóna króna tap á rekstrinum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send hefur verið fjölmiðlum. Viðsnúningurinn nemur 621 milljón króna. Sé horft á heildarniðurstöðuna er bæjarfélagið hins rekið með 60 milljóna króna halla vegna erfiðrar skuldastöðu.

„Upphafleg áætlun gerð iráð fyrir tapi á samstæðu upp á 429 milljónir og er því niðurstaðan 602 milljónum betri en í þeirri áætlun," segir í tilkynningunni.

Þar kemur jafnframt fram að hlutfall launakostnaðar fer úr 52% af heildartekjum í 48% milli ára. „Enn er þó halli á bæjarsjóði en hann lækkar úr 606 milljónum króna í 60 milljónir á síðasta ári," segir í tilkynningunni en sé einungis horft á rekstur fyrir afskriftir og fjármagnsliði nemur afgangurinn 368 milljónir króna.

„Heildarniðurstaðan upp á 172 milljónir í hagnað er mikil breyting til batnaðar. Að krónutölu er hér um mestan afgang að ræða af reglulegri starfssemi sveitarfélagsins frá upphafi. Meðalafkoma sveitarfélagsins síðustu níu ára af reglulegri starfssemi hefur verið tap upp á130 milljónir á ári í samstæðu," segir í tilkynningu.

Hins vegar eru skuldir enn verulegar og þarf enn að bæta rekstrarafkomu sveitarfélagsins til að unnt sé að greiða niður skuldir í viðunandi horf. „Hlutfall skulda af samstæðu lækkar um 1,8 prósentustig en stefnt er að því að lækka skuldahlutfall verulega á næstu misserum. Áfram verður því unnið að hagræðingu eins og kostur er á," segir í tilkynningu frá Árborg.

Ársreikningur fyrir árið 2010 fylgdi ekki með tilkynningu frá Árborg og hann var ekki að finna á heimasíðu sveitarfélagsins. Tölur hér að ofan eru fengnar úr fréttatilkynningu.