Innköllun vegna slita skilanefndar á þrem félögum í Atorku samsteypunni stendur nú yfir. Þetta eru félögin Atorka-Industrial ehf., kt. 630708-1170, Atorka Holding ehf., kt. 631006-3530 og Atorka Holding 2 ehf., kt. 630708-1090. Auk þess er innköllun vegna slita á  S-I ehf., kt. 640205-0750 en öll voru félögin skráð til heimilis að Hlíðarsmára 1 í Kópavogi.

Í Lögbirtingarblaðinu er skorað á alla þá sem telja til skulda eða annarra réttinda hjá félaginu eða telja til eigna í vörslu þess að lýsa kröfum sínum á hendur félaginu fyrir 28. júní.