Franski bílaframleiðandinn Renault hefur búið til tvær auglýsingar þar sem nýjasta gerðin af Renault Clio er auglýst. Eru þær nokkurn veginn eins. Í báðum auglýsingum fá einstaklingar að prufukeyra þennan nýja bíl. Munurinn felst hins vegar í því að í annarri auglýsingunni er kona á bak við stýrið en í hinni karl.

Clio er byggður á hugmyndabíl sem Renault kynnti á bílasýningunni í París í október árið 2010 og kom nýverið á markað.

Hér að neðan má sjá báðar auglýsingarnar. Þeir sem skoða auglýsingarnar ættu að taka fljótlega eftir því að nokkuð augljósum aðferðum er beitt til að höfða til kynjanna.