Dómsmálaráðherra sendi í gær erindi til réttarfarsnefndar varðandi símhlustanir. Þar segir að ráðuneytinu hafi borist erindi tveggja lögmanna þar sem gerð sé grein fyrir ýmsum atriðum sem betur mættu fara að þeirra mati við meðferð sakamála og varða samskipti lögmanna og verjenda, framsetningu dóma í sakamálum, símahlustanir, húsleit og sönnunarbyrði. Einnig hafi ráðuneytinu borist ályktun stjórnar Lögmannafélags Íslands varðandi samskipti verjenda og vitna.

Í erindi sínu óskar dómsmálaráðherra eftir því að réttarfarsnefnd taki ofangreinda hluti til skoðunar og komi með tillögur að breytingum telji hún ástæðu til. Þá fer ráðherra þess á leit við nefndina að hún taki sérstaklega til skoðunar ákvæði laga um meðferð sakamála sem varða símhlustun. Óskar hann eftir að nefndin skoði hvort ástæða sé til að gera breytingar á ákvæðum sem varða skilyrði fyrir símhlustun og hvernig staðið skuli að eftirliti með slíkum aðgerðum. Telji nefndin rétt að breytingar verði gerðar skuli hún senda ráðuneytinu tillögur sínar að breytingum.