Réttindi Lífeyrissjóðs bænda ekki skert að svo stöddu segir í tilkynningu sjóðsins þrátt fyrir að ávxtun sjóðsins gefi tilefni til þess. Nafnávöxtun síðasta árs var neikvæð um 4,3% og hrein raunávöxtun neikvæð um 17,9%.

Meðaltal nafnávöxtunar síðustu fimm ára nam 8,18% og hreinnar raunávöxtunar 0,7%. Sjóðinn vantar 5,4% eða 1.205 mkr. til að eiga fyrir áföllnum skuldbindingum og 9,3% eða 2.775 mkr. til að eiga fyrir heildarskuldbindingum.

Efnahagshrunið síðasta haust hafði töluverð áhrif á stöðu sjóðsins en eignir hans rýrnuðu um 5,9% frá ársbyrjun 2008. Taka þarf þó tillit til þess að lífeyrisbyrði sjóðsins er um 161% og þarf hann því árlega að ganga á ávöxtun ársins eða eignir eins og raunin varð 2008. Réttindi í sjóðnum verða ekki skert að svo stöddu.