Reykjanesbær hefur endurfjármagnað og framlengt lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga og írska bankanum DePfa, fyrir hönd pbb bankans.

Samkvæmt tilkynningu til Kauphallar eru lánin eftirfarandi:


1) Lánasjóður sveitarfélaga ohf hefur endurfjármagnað afborganir tveggja lána bæjarins á árinu 2011 að upphæð 840 milljónir króna með nýju láni til 13 ára.
2) Írski bankinn DePfa fyrir hönd pbb bankans í Þýskalandi hefur framlengt erlent lán bæjarins að upphæð EUR 12.000.000 til 2ja ára.