Minnihluti kröfuhafa Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar hefur synjað að ganga til samninga á grundvelli samkomulags um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar. Kemur þetta fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Ein forsenda gildistöku samkomulagsins var sú að allir kröfuhafar Reykjanesbæjar og stofnana undirrituðu það. Í tilkynningunni segir að þrátt fyrir að meirihluti kröfuhafa hafi nú skilað undirrituðu samþykki sínu til Reykjanesbæjar og stofnana sé ljóst samkomulag muni ekki nást þar sem minnihluti kröfuhafa hafi synjað að ganga til samninga á grundvelli þess.

Eins og greint var frá í tilkynningu Reykjanesbæjar hinn 7. apríl samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að bera undir kröfuhafa samkomulag um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana með tilteknum fyrirvörum. Í tilkynningunni kom einnig fram að bæjarráð hafi samþykkt að næðist ekki samkomulag fyrir 15. apríl yrði óskað eftir því að sveitarfélaginu væri skipuð fjárhaldsstjórn skv. 86. gr. sveitarstjórnarlaga.