Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Isaac Kato hjá Verne Holdings, hafa undirritað samning um skipulag svæðis undir gagnaver að Ásbrú í Reykjanesbæ. Í tilkynningu kemur fram að samningurinn tryggir m.a. Reykjanesbæ 17 milljóna króna árlegar tekjur af fasteignagjöldum núverandi bygginga á umræddu svæði  en um þreföldun við fyrirhugaða stækkun bygginga. Gagnaverið hefur fengið um 180 þúsund fermetra svæði til umráða að Ásbrú. Verne Holding mun sjá um frágang gatna innan umrædd svæðis.

“Samningurinn við Reykjanesbæ er báðum aðilum hagstæður”, segir Jeff Monroe, forstjóri Verne Holdings í tilkynningu. “Staðsetning gagnaversins að Ásbrú er einstaklega  hentug fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Við erum þakklát fyrir stöðugan áhuga og gott viðbragð af hálfu Reykjanesbæjar og hlökkum til áframhaldandi árangurs”.

“Við höfum mjög jákvæðar væntingar til þessa verkefnis”, segir Árni Sigfússon bæjarstjóri. “Enn er beðið lokafrágangs fjármálaráðuneytis við fyrsta fyrirtækið sem hyggst nýta sér aðstöðu Verne Holding og gerast frumherji á sviði rafrænnar gagnavörslu á Íslandi. Umheimurinn fylgist því vel með.