Reykjaneshöfn er í vanskilum með gjalddaga 1. maí sl. vegna greiðslu afborgana og vaxta af skuldabréfaflokki nr. RNH08.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en þeir sem eru með skuldabréf í viðskiptum í Kauphöllinni eru skyldugir til að tilkynna um greiðsluerfiðleika.

Reykjaneshöfn er í meirihlutaeigu Reykjanesbæjar en félagið hefur með aðstoð sveitafélagsins staðið í endurfjármögnun á langtímalánum Reykjaneshafnar, en lánaútboð Reykjanesbæjar hefur enn ekki borið árangur.   „Tafir við uppbyggingu álvers Norðuráls í Helguvík og fleiri verkefna til atvinnuuppbyggingar í Reykjanesbæ hafa átt sinn þátt í að lánaútboðið bar ekki árangur, og að lokum neikvæður fréttaflutningur af málefnum Reykjanesbæjar,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að Reykjaneshöfn hafi einnig átt von á tekjum vegna lóðagjalda í Helguvík, sem hafi enn ekki komið, en séu væntanlegar á næstu vikum. Þær eru vegna Íslenska kísilversins ehf., Norðuráls ofl.

„Einnig hafa óskir Reykjaneshafnar um ríkisstyrk við hafnarframkvæmdir í Helguvík ekki borið árangur,“ segir í tilkynningunni.

Loks kemur fram að búið er að greiða hluta vanskilanna og semja um fullnaðar uppgjör innan tveggja mánaða.