Íbúðahótelið Reykjavík Residence á Hverfisgötu 45 hlaut nýverið viðurkenningu frá ferðabókunarvefnum Expedia sem eitt af bestu hótelum heims. Hótelin eru metin á þrennan hátt; eftir umsögnum gesta sem dvalið hafa á hótelunum, eftir því hversu hagstætt verð er á gistingunni miðað við önnur sambærileg hótel og þjónustuna sem í boði er, og samkvæmt mati sérfræðinga Expedia sem heimsækja hótelin.

Fram kemur í tilkynningu að Reykjavík Residence Hotel hlýtur meðaleinkunnina 4,8 af 5 mögulegum í einkunnagjöf gestanna.

Aðeins eitt annað hótel á Norðurlöndunum kemst á listann að þessu sinni; Hotel Haven í Helsinki. Reykjavík Residence Hotel er metið númer 29 í röðinni af þeim 650 hótelum sem valin voru á viðurkenningarlistann „Expedia Insiders' Select 2013“, af alls 150.000 hótelum um allan heim sem skráð eru á Expedia.

Þá segir í tilkynningunni að Reykjavík Residence Hotel var valið besta íbúðahótel á Íslandi á verðlaunahátíð World Travel Awards í Evrópu, sem haldin var í Antalya í Tyrklandi um síðustu helgi.