Rough Guides, sem er í eigu hins virta útgefanda Penguin Random House, hefur gefið út ferðabækur í meira en 30 ár. Nú, í byrjun nýs árs, hefur Rough Guides birt lista yfir 10 borgir sem þeir mæla með að fólk heimsæki árið 2016. Í efsta sæti listans er Reykjavík.
„Aukinn fjöldi ferðamanna sækir Reykjavík heim í þeim tilgangi að skoða listasenuna, upplifa næturlífið og náttúruperlurnar sem eru rétt handan hornsins," segir meðal annars í umfjöllun Rough Guides, sem lesa má hér .
Topp 10 listi Rough Guides:
- Reykjavik, Ísland.
- Mexico City, Mexíkó.
- Seoul, Suður-Kórea.
- Ljubljana, Slóvenía.
- Wroclaw, Pólland.
- Nashville, USA
- Amsterdam, Holland.
- Hull, England.
- Vancouver, Kanada.
- Agra, Indland.